Þá er ég komin til baka til Ástralíu eftir alveg 2 æðislegar vikur í nýja sjálandi, eins og ég sagði í seinasta bloggi þá fór ég á stað með vinum mínum sem heitir Coopers Beach og þar var alveg ótrúlega fallegt.

Þetta var útsýnið sem við fengum frá yfir vatnið ef við horfðum út um gluggann á sumarbústaðnum sem við vorum í.

Síðan fórum við og skoðuðum Haruru falls

Þetta er síðan sonur hjónana sem ég var að heimsækja, hann heitir Liam og er 4 ára algjör fjörkálfur (Gerði mig stundum crazy á meðan ég var þarna)
Pabinn í fjölskyldunni hann Nic er mikill áhugamaður um skóga og tré, hann vinnur sem öryggisfulltrúi fyrir öll fyritæki sem sjá um skógarhögg og hann ferðast um allt nýja sjáland til að sinna vinunni sinni.. Hann tók mig og Liam (Strákinn þeirra) í einn og skog og þar sá ég ekkert smá flott og stór tré

Nic er alveg 2 metrar á hæð svo að þetta tré er alveg risa stórt.

Ég og liam lítum út eins og einhverjir dvergar hérna, og það var ótúlega skrítið að koma við börkin á þessum trjám, ekki svona börkur sem er á trjánum heima heldur allt öðruvísi..

Liam að pósa fyrir framan myndavélina, hann vildi alltaf að ég væri að taka myndir af sér... Ok im ready now, take a photo of me.. (einn sem kann þetta)
Á leiðinni til baka frá Coopers Beach stoppuðum við í Auckland og skoðuðum sædýrasafnið sem er þar, Nic sagði að hann hefði stundum farið þangað þegar hann var unglingur þannig að þetta er alveg búið að vera hérna í 20-30 ár


Ég sá þessar sætu mörgæsir í sædýrasafninu, alveg eins og mörgæsirnar í happy feet


Á tjörninni þarna eru svartir svanir, maður er svo vanur að sjá hvíta svani að það var mjög flott að sjá svarta.

Síðan fór ég hitti Faylen og Supryiu vinonur mínar. Þær tóku mig í smá útsýnisferð í úthverfi rotorua..

Við stoppuðum á einum útsýnis staðnum og faylen sagði við mig.. veistu hvað tréin hérna eru svoldið spes, það vaxa geisladiskar á þeim.. og ég algjör ljóska var alveg vá í alvörunni ég vissi ekki að það væri hægt




... (Þetta hvíta þarna á myndinni er geisladiskur)

Þessi 2 stöðuvötn eru við hliðina á hvort öðru en það sem er sérstakt við þau er að eitt er græn og eitt er blátt.... Ég fór upp í stórann hól sem er á milli þessa stöðuvatna og tól þessat myndir og þetta er ekkert smá flott.... Margir segja að græna stöðuvatnið sé grænt út af því að það eru svo mörg lík á botninum (Veit ekki hvað er mikið hægt að marka það)
Síðan tók ég nokkrar myndir af bænum sem þau búa í, hann heitir Rotorua og er þekktur fyrir mikin jarðhita.. og eins og má sjá af myndunum þá fannst mér ég vera komin til íslands þar sem geysir er.






Allar þessar myndir eru teknar þegar ég var að labba um bæinn, þetta er ekkert í út úr heldur inn í bænum sjálfum.

Síðan er þetta the maori muesum sem er í Rotorua (Það er nefnilega mjög mikil maori mennig þarna og það eru nokkur maori þorp í útjaðri rotorua.) Safnið er á stað sem heitir government gardens og er mjög fallegur garður.

Þessi kall er líka þarna inn í garðinum, hann er uppáhaldið hans Liams og hann var alltaf að spurja mig hvort ég hafði séð hann Fred Rylie.. og ég var alveg hmmm hver er það... og síðan þegar ég sá þessa styttu þá fattaði ég hvað hann var að tala um... og þessi stytta hét ekki Fred Rylie heldur Fred Wylie..

Hérna er ein mynd af fólkinu sm ég gisti hjá.. Nic heldur á Liam og Saroj.


í seinasta bloggi sagði ég líka að ég hafi farið á strönd sem heitir 90 miles beach og ég tók síðan mynd af henni úr flugvélinni (Náði samt bara að traka mynd ad smá parti því að þessi strandlengja er svo stór)
Hvet alla sem ætla að fara í heimsreisu að koma við í nýja sjálandi , þið eigið pottþétt ekki eftir að sjá eftir því..
Núna á ég alveg 2 vikur eftir að fríinu svo að ég ætla bara að njóta þess að vera í fríí... Síðan er spáð 28 stiga hita og sól alla vikuna svo það er ekki amalegt..
Harpa